miðvikudagur, 7. desember 2011

30. Kúl

Jú, það er blessuð blíðan og bæirnir allt í kring.
 Mælum ber ekki alltaf saman. Hér eru gamli og nýi tíminn. Sá gamli kúrir upp við ekki allt of einangrandi glugga í skjóli við snjó og klakahellu og sýnir um það bil 3 gráður á meðan sá nýi sem hefur skynjarann utan á austurveggnum vill meina að þarna séu 11,4 gráður. Þetta var annan desember.


 Hér sjáum við spána í gær klukkan 12 á hádegi. Eins og sjá má á þessu korti er ég ekkert mjög langt frá því að vera mitt á milli þessara þriggja staða, Húsavíkur, Akureyrar og Mývatns. Það er segja ef við miðum við loftlínu.
 Svona var mælirinn hjá mér um hádegisbilið (18,3) en í kyrru veðri er samt vel hægt að nota sér snjóinn. Það gerðu Grettir og Ívan.
Í gær fóru bara sumir bílar í gang.
Nú eru ekki nema rúmar 13 gráður.
Hlýjar kveðjur að norðan.

6 ummæli:

  1. Skemmtileg mynd af hundunum á bakgrunninum.

    SvaraEyða
  2. Þetta voru þeir Kvistur og Laufi og eru því miður báðir látnir. Sá eldri missti heilsuna en sá yngri sem átti að taka við af föður sínum lést í bílslysi. Báðir voru með annað augað blátt og hitt brúnt.

    SvaraEyða
  3. Grettir er vinur Ingimundar og býr í Mývatnssveit.

    SvaraEyða