Slitið fremra krossband, mar á endum sköflungs og lærleggs og einhver tognun í kring. Takk fyrir.
fimmtudagur, 21. febrúar 2013
þriðjudagur, 19. febrúar 2013
89. Sterk bein til að þola góða daga
Hér erum við systkinin stödd á ættarmóti árið 1996. Við stöndum í aldursröð og erum fædd á árunum 1952 til 1973. Einn bróðir lést árið 2000.
Mér telst svo til að samtals höfum við lifað um það bil 413 ár, og á þeirri "ævi" aðeins brotið einu sinni bein svo ég viti! Það var þegar Yngvi bróðir stakkst af hestbaki þegar hann var krakki og handleggsbrotnaði.
Uppfært 18.03.12.: Jói var að segja mér að hann hefði einu sinni brotið bein í hendi. Þá var hann í vinnunni en ekki að gera neitt af neðantöldu.
Þetta er samt áreiðanlega alls ekki vegna þess að ekkert reyni á, því að þetta lið hefur löngum verið upp um allt og út um allt, ýmist labbandi, hlaupandi, hjólandi, skíðandi, klifrandi, róandi, syndandi, stökkvandi (í fallhlíf) eða dansandi. Þetta síðasttalda er reyndar það sem ég nenni helst þó að ég hafi svo sem prófað allt hitt í mislitlum mæli nema fallhlífina. Ónafngreindir fulltrúar þessa hóps hafa til að mynda þverað landið á skíðum, hjólað á Öræfajökul, hlaupið víða um lönd svo dægrum skiptir, klifið Hraundranga, farið á kajak með ströndum landsins, klifrað upp og ofan ísaðar klappir með tilheyrandi búnaði og svo framvegis.

Ég dreg þá ályktun að hér vinni saman góð beinagen, hreyfing og mjólk. Á okkar bernskuheimili fóru nokkrir tíu lítra mjólkurkassar á viku á meðan kaffi sást ekki nema ef komu gestir.
Þetta beinalán virðist hins vegar ekki hafa skilað sér eins vel til afkomenda minna þar sem eldri helmingur þeirra hefur eitthvað brotið af sínum beinum.
Best að reikna saman hvað afkomendur mínir 8 eru gamlir samtals......
Best að reikna saman hvað afkomendur mínir 8 eru gamlir samtals......
147,5 ára!
sunnudagur, 17. febrúar 2013
88. Svo liggur hver sem hann hefur um sig búið
Um þessar mundir eyði ég langmestum tíma mínum í rúminu með háttsettan fót. Til þess að útbúa viðunandi aðstæður þarf ég að lágmarki 8 kodda. Svona lítur rúmið út þegar ég hef náð að brölta fram úr á morgnana.
Hérna er ég svo búin að koma öllu í lag til að skríða upp í aftur; 4 koddar undir vinstri fót, einn til að hagræða hægra fæti, - það er jú ljótt að skilja útundan - að minnsta kosti þrír koddar að baki ef ég ætla vera eitthvað með gömlu þungu fartölvuna hans pabba og þarna sést líka kexpakki í glugganum en það er víst skynsamlegt að éta eitthvað með öllum þessum pillum sem ég hef verið að innbyrða.
Ég er alveg háð öðrum með vatnið á náttborðinu á meðan ég róta mér ekki um nema á tveimur hækjum. Ég er eitthvað á róli á daginn svona þegar ég verð hvort eð er að fara framúr til að brölta á klósettið sem staðsett er á neðri hæðinni. Það gengur alveg, tekur bara tíma. Ég get líka látið fara þokkalega um mig við sjónvarpið með fótinn uppi en það geri ég ekki að neinu gagni við borðtölvuna. Þar er ég því ekki mjög lengi í senn en fattaði í gær að til að geta bloggað í rólegheitum væri sniðugt að setja inn myndirnar í aðaltölvunni og dunda svo við textann við tækifæri í rúminu og nú er ég sem sagt að því.
Í kvöld eru liðnar tvær vikur síðan ég datt og ég hef farið þrisvar út úr húsinu; tvær ferðir á heilsugæsluna á Húsavík og í gær að syngja við jarðarför og í erfidrykkju á eftir. Það gekk allt vonum framar en ansi var ég orðin rauð í vinstri lófa þegar ég kom heim af því að hanga á hækjunni. Á morgun á ég svo tíma í segulómun á Akureyri og eftir það verður kannski hægt að fara að spá um framhaldið. Við þykjumst vita að liðband sé að minnsta kosti tognað, hugsanlega slitið og liðpúði skemmdur með einhverjum hætti.
Mér gefst nægur tími til að hugsa og eitt af því sem ég hef gert mér glögga grein fyrir, er hvað þarf margar smáar en mikilvægar hreyfingar til að koma sér þægilega fyrir í rúmi. Það gildir þar eins og annars staðar að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Ég hef fundið sárt til þess undanfarið að hafa ekki getað sofið í minni aðal stellingu en hún mun kölluð fósturstelling. Hún er langskárst þegar ég er vond í baki. Ég segi að ég sé nú orðin eins og skilyrt rotta sem búið er að kenna með rafstraumi hvaða hegðun er röng. Það gengur furðanlega að venja mann af ósjálfráðum hreyfingum með logandi sársauka. Ég finn hinsvegar ekkert til í fætinum ef ég hef frið í "réttum" stellingum. Í morgun þegar ég rumskaði varð mér fyrst fyrir eins og venjulega að reyna að hnika mér eitthvað til, eftir að hafa verið á bakinu nokkra klukkutíma. Það gengur þannig fyrir sig að ég mjaka mér ofurgætilega til vinstri og um leið þarf að snúa fætinum varlega ofurlítið með handafli. Svo eftir að hafa hallað efri partinum til hægri er að reyna að snúa mjaðmasvæðinu líka - með handafli að hluta -, en það verður að gerast án þess að hnjáliðurinn taki eftir því og þar strandar málið venjulega. Ef Agnar er á sínum stað og vakandi hef ég fengið að toga í hann og svo er að skella einhverjum púðanum við bakið til að ekki rúlli allt til baka. Í morgun komst ég hins vegar alveg upp á eigin spýtur alla leið á hliðina!! Og gat líka dregið að mér vitlausa fótinn og sett þykkan kodda á milli hnjánna (því þeim kemur afleitlega saman hnjánum á mér við þessar aðstæður). Og þarna lá ég svo himinglöð og fann barasta ekkert til! Helst langaði mig til að hrópa húrra en það hefði tæplega fallið í kramið því að það voru þrjár sofandi manneskjur í húsinu.
fimmtudagur, 14. febrúar 2013
87. Hált á svellinu
Fleirum verður hált á svellinu en okkur tvífætlingunum.
Nágranni okkar kom í gær til að hjálpa bóndanum við heyrúllur. Hann átti leið yfir túnið en á túnum eru víða hrikalegir svellbólstrar. Næstum efst hafði vélin ekki lengur grip og rann af stað og þá varð ekki við neitt ráðið. Þegar hún hitti fyrir vegarkantinn skall hún á hliðina. Eins og sést var snjóföl yfir allt og ekki sést eins vel hvar svellin eru verst. Látið mig vita það. Ég veit þó ekki hvort það hefði neinu breytt í þessu tilviki.
Hér er komin önnur vél sem heldur á brott eftir að hafa athugað aðstæður.
Þegar nokkuð var farið að skyggja kom öðruvísi og öflugri vél en það dugði þó ekki til, enda undirlagið hallandi svellbunki svo að betra er að fara að öllu með gát.
Hérna heldur stóra dráttarvélin öllu í skefjum á meðan gula vélin lyftir hinni föllnu á hjólin. Hún var svo dregin upp á heimreiðina og rennt niður á jafnsléttu á meðan stóra systir hélt við. Það er víst ekki sniðugt að setja í gang eftir að vél er búin að vera á hvolfi um hríð.
fimmtudagur, 7. febrúar 2013
86. fótverkur
Í dag sá ég sólskin inni í húsinu mínu í fyrsta sinn síðan í nóvember. Jákvætt og skemmtilegt. Annað skemmtilegt var að vera í afmælisveislu ársgamallar ömmustelpu á föstudaginn var.
Hér hlusta þær mæðgur á stórabróður segja eithvað gáfulegt.
Fullorðna fólkið virðist alltaf vera að týna einhverju og nú spyr það barnið stöðugt um týnda líkamsparta, hér er verið að sýna Mörtu hvar nefið á henni er. Ég vek sérstaklega athygli á hárgreiðslunni!
Svo þurfti að frussa svolítið á kerti. Barnið hálfsá nú samt eftir þessu fína ljósi. Þarna er hún búin að hafa fataskipti, "einhver" sullaði víst kjötsúpunni á fína kjólinn.
Daginn eftir var svo þorrablót og það var mjög gaman, ég dansaði helling og söng eins og mér sýndist og spjallaði við fólk í hávaða og fann bara ekkert til í hálsinum daginn eftir!!! Aldeilis frábært. Sunnudagurinn var letidagur og þar var ekki fyrr en um kvöldið sem ég drattaðist aðeins út til að hjálpa til við að koma hrossunum inn, en þau muna illa hvar girðingarnar eru undir snjónum. Úti var glerhált og komin ný snjóföl ofan á svellið. Mér leist afar illa á þetta og steig ofurvarlega þar sem ég giskaði á að væri gamall skafl undir en ég giskaði vitlaust.
Nú er ég í fyrsta skipti á ævinni búin að nota bæði hjólastól og hækjur og það er ekkert sérstaklega gaman að vera til. Ekkert fannst brotið en líkast til er tognað liðband og rifinn liðþófi í hnénu og ég ligg mest með hátt undir fætinum og les eða góni út í loftið og rifja upp eitthvað skemmtilegt svona á meðan bakið drepur mig ekki. Ef ég hreyfi fótinn örlítið vitlaust er það logandi sárt en á meðan ég hef frið finn ég ekkert til. Get borið mig um á hækjunum með ýtrustu gát. Ét pillur og nota kaldan bakstur. Á að fara aftur til læknis á mánudag til að athuga hvernig hefst við og líklega mynda aftur.
Athugið samt að það er fullt af skemmtilegu í þessari færslu.
mánudagur, 14. janúar 2013
85. Finna
Hún Finna vinkona mín dó að morgni nýársdags. Hún fæddist í febrúar 1913 og dó í janúar 2013 og var jörðuð síðastliðin laugardag.
Ég skrifaði minningargrein:
Það er afar misjafnt hversu langan tíma fólk fær hér á
jörðunni. Þeir sem lengstan tíma fá hafa sitthvað séð og forréttindi eru að fá
að kynnast slíku fólki og eignast það að vinum. Hún Finna var komin á
tíræðisaldur þegar hún féllst á að kannski væri rétt að þiggja heimilishjálp.
Það var nú samt held ég aðallega gert til að friða fjölskylduna. Ég var svo
heppin að fá þetta verkefni. Hún var orðin heimakær og það gat varla heitið að
ég hefði séð hana fyrr, en aðeins heyrt hennar getið eins og gengur í
sveitinni. Mér skildist að þetta væri órög dugnaðarmanneskja sem ætti það til
að láta ýmislegt flakka svona ef þannig stæði á spori. Ég var ofurlítið hikandi
þegar ég gerði fyrst vart við mig á Knútsstöðum en fljótlega kom í ljós að
þarna hitti ég vinkonu. Við áttum afar margt sameiginlegt og kom ákaflega vel
saman. Hún lagði mun meiri áherslu á samveru og samvinnu en að sitja og stjórna
öðrum og það var fróðlegt og skemmtilegt að vera með henni í verki hvort heldur
það var við kleinugerð sem við stunduðum reglulega, saumaskap þegar við
hvolfdum spariflík og endursaumuðum, viðgerð ljósakrónu, eða bara hvað sem
okkur datt í hug að gera þyrfti. Við höfðum sama viðhorf til nýtingar og sóunar
og miðluðum hvor annarri hugmyndum. Nú er ég til dæmis búin að útvega mér
glerskál úr þvottavélarloki. Þegar ég sagði henni að ég væri að gera kerti úr
vaxafgöngum lét hún mig hafa dálítin klump sem ég fór með heim og steypti úr
kerti handa henni. Ég tók það svo með mér til hennar næst en þá tók hún á móti
mér með þeim orðum að nú væri hún að drepast. Rósamál var jú ekki hennar stíll.
Hún hafði samt ekkert við það að athuga að ég hringdi eftir aðstoð þó að hún
hafi einhvern veginn ekki haft sig í það sjálf, var ekki dugleg að snúa fólki í
kring um sig. Þennan dag urðum við samferða í sjúkrabíl til Húsavíkur og eftir
það átti ég ekki erindi í heimilishjálp á Knútsstöðum. Ekki setið saman með
prjóna yfir leiðarljósi eða í lönguvitleysu við eldhúsborðið. Árin hennar úti á
sjúkrahúsi var ég ekkert nærri nógu dugleg að líta til hennar en alltaf var það
gaman, mest gaman líklega þegar ég fór til hennar klædd peysufötum á
þjóðhátíðardegi. Þær voru þá tvær saman á stofu og var helst eins og ég hefði
fært þeim dýrindisgjöf.
Hún lá ekkert á því að þetta væri að verða komið gott enda
væri hún orðin til lítils gagns. Síðast þegar ég kom til hennar hjálpuðumst við
nú samt að við að leysa myndarlega garnflækju. Ég var farin að hallast að því
að ég fengi að faðma hana á hundrað ára afmælinu en það verður víst ekki af
því.
Elín Kjartansdóttir.
Skrifað og sent 9. Jan. 2013
Svo gerði ég skreytingar. Hún hafði ákveðið að hafa íslenska fánann á kistunni svo að ekki var þörf fyrir kistuskreytingu en undir lok athafnar er fáninn tekinn af og settur moldarkrans. Ég tók hann að mér. Ég fór og tók allt efnið í hrauninu hennar Finnu, það kom alls ekki annað til greina. Sem betur fór hafði hlánað smávegis ofan af efstu klöppum og hólum svo að mér tókst að finna gott efni.
Moldarkransinn er mosaþúfa sem er krydduð lítillega. Hún virkaði vel. Undir henni er rakur strigi sem var rennt yfir á kistuna.
Gerði líka körfu. Held bara að þetta sé einhver besta karfan sem ég hef gert. Maður veit eiginlega aldrei hvernig þetta verður, maður byrjar bara með þá körfu og það efni sem maður hefur fundið og svo er að sjá hvað verður úr því.
Ég var með smá afgang af greinum sem ég var búin að hreinsa og snyrta og ekki kom til greina að henda neinu svo ég fór með þær í ofnskúffu í félagsheimilið fyrir jarðarförina og kvenfélagskonurnar settu þær á hlaðborðið. Þegar ég vitjaði skúffunnar eftir kaffið voru nokkrar litlar þar eftir og þær fóru í þennan vasa sem ég er með á stofuveggnum og er vanur að fá nýjar greinar þegar ég er í svona stússi í sambandi við jarðarfarir eða gamla spýtujólatréð. Ég bara nennti ekki að grafa upp sortulyng á það fyrir þessi jólin.
föstudagur, 4. janúar 2013
84. Jólabréfið 2012
Ég hélt í sakleysi mínu að það væri bæði einfalt og fljótlegt að afrita og líma inn eitt stykki jólabréf, en ónei. Ég hafði sett inn í það nokkrar litlar myndir og það flækti heldur betur málin. Það endaði með því að ég vistaði bréfið upp á nýtt sem jólabréf á blogg, henti svo myndunum út og þá gekk fínt að afrita og líma. Nú set ég svo inn myndirnar á minn venjulega bloggarahátt og þarf ekkert að hugsa um hvað það kosti að prenta þær út. Þar af leiðandi held ég bara að ég hafi þær fleiri og skítt með það þó að einhverjar þeirra hafi birst hér fyrr.
Nú ætla ég að breyta frá
hefðbundnu jólakorti og senda frá okkur yfirlit. Mér finnst gaman og fróðlegt
að fá slík bréf og ætla að prófa að semja slíkt sjálf. Eitt af því fyrsta sem
bar til tíðinda á árinu var að ég brá mér til Kópaskers til að leika í
kvikmynd. Stuttmynd raunar, en það er svo miklu virðulegra að tala um kvikmynd.
Þannig stóð á þessu ferðalagi að leikfélagi minn frá því að við lékum í
Landsmótinu á Breiðumýri og í Þjóðleikhúsinu hafði samband við mig og bað mig
að leika í útskriftarverkefninu hans frá Kvikmyndaskólanum. Þarna á Kópaskeri varð
til myndin Engin traffík.
Þetta var skemmtileg lífsreynsla og gaman að eiga nafnið sitt á svona bíóplakati. Í þessum fyrsta mánuði ársins gerðist svo það almerkilegasta þegar ég eignaðist fimmta ömmubarnið mitt. Fljótlega brá ég mér suður til hennar og við brölluðum sitthvað saman. Má þar líklega helst nefna að ég kenndi henni að dansa Yenka og hún verður áreiðanlega góð í því með tímanum þó að hún hafi steinsofnað í miðri kennslustund.
Í febrúar fór allt á fullt í leikhúsinu þar sem við settum upp Í gegn um tíðina og því fylgdi afar mikil búningavinna. Við notuðum um það bil 328 flíkur og 67 skópör. Ég lék Guðfríði, konu Gísla í gröf og þetta var bráðskemmtilegt og var gerður góður rómur að.
Jólabréf 2012

Í mars var minnsta
ömmuljósið skírt og fékk nafnið Elín Rut. Já takk, ég á tvær ömmustelpur og þær
heita báðar Elín! Ég segi að þetta sé til marks um það ég sé líklega ekki
albölvuð við tengdadæturnar, svona að minnsta kosti eitthvað fram yfir skírn.
Hér er ég með hópinn minn; Ívan Veigar Ingimundar, Lindu Elínu og Jóhann Smára
Kjartansbörn og Elínu Rut og Jakob Ágúst Róbertsbörn.
og í júní fermdist Linda Elín. Hún valdi að fermast hér
að Grenjaðarstað þar sem hún hefði verið skírð hér heima í stofu. Þetta gladdi
Agnar alveg sérlega mikið þar sem þá þurfti hann ekki að leggja land undir fót.
Seint í apríl fékk Ingimundur lánaðan bílinn minn og það fór ekki vel. Hann slapp þó furðu vel sjálfur og Grettir (hundur Mörtu) var að því er virtist alveg í lagi. Þetta hafði þau leiðindi í för með sér að ég varð að fara á stúfana og finna mér annan vetrar og hestakerrubíl og eftir nokkra leit keypti ég gamlan galloper. Agnar taldi fráleitt að hægt væri að muna svoleiðis nafn og ætlar að kalla hann Lindýhopp. Við erum búin að selja rauða hræið til niðurrifs og fengu færri en vildu. Helsti vandinn að menn voru ekkert áfjáðir í að borga mikið fyrir hann en þetta er víst dýrindi fyrir fjallakalla.
Í maí var sauðburður að mestu með hefðbundnum hætti. Marta kærasta Ingimundar er hér að sinna honum Matta. Hún styttir honum stundir með því að lesa fyrir hann íslenska mannfræði á pólsku inni við ofninn í eldhúsinu. Allt gekk þetta bærilega.

Í júlí fór ég vestur
á Ísafjörð að jarðarför föðurbróður. Gaman var að fá tækifæri til að rölta þar
um gamlar slóðir svolitla stund og rifja upp árin sem ég bjó þar. Þaðan lá
leiðin að Hvanneyri til að keppa í ULL Í FAT. Þar kepptu að þessu sinni þrjú
tveggjamanna lið og verkefnið var að spinna og prjóna tvíþumla vettling.
Skömmu síðar var svo haldið stórt og gott ættarmót í Borgarfirði þar sem ég var dálítið í umsjón og umstangi. Þarna komu saman afkomendur Holtakotasystra en mamma er ein þeirra.
Í ágúst gerðist fátt umtalsvert en í september gerðist fleira en fólk kærði sig um. Skömmu áður en göngur voru fyrirhugaðar brast á veður sem fór afar illa með sauðfé og kostaði það mikla vinnu hjá mjög mörgu fólki og töluvert tjón varð á búfénaði, girðingum og gróðri. Hérna er mynd af safninu sem tókst að finna í fyrstu lotunni og reka til réttar. Þar hjálpuðu til auk annarra, Fríða, Kjartan og Elsa.
Við fórum í réttir í frekar blautu veðri og höfðum okkur til halds og trausts 26 manneskjur á öllum aldri. Elín Rut var yngst og Agnar elstur. Af afkomendum okkar vantaði bara Magnús, Sölva og Lindulín. Allir voru duglegir og fengu sér kakó og kleinur og þrátt fyrir erfiðan aðdraganda varð þetta ágætur dagur.
Nokkru síðar fóru svo Ingimundur og Fríða í leitir í Þeistareykjalandi og stóðu sig vel. Þegar upp var staðið vantaði okkur ellefu kindur auk þess sem þrjú lömb voru ekki tæk til slátrunar vegna hrakninganna. Þetta telst víst ekki mikið og fellur að mestu leyti innan sjálfsábyrgðar þannig að ekki er búist við miklum bótum í þetta bú. Þó er það ekki fullfrágengið. Hér heima varð líka annars konar tjón, það er að segja í skóginum okkar. Þar brotnaði nokkuð af alaskavíðinum og restin rótslitnaði í stórum stíl. Aðrar plöntur skemmdust minna. Ingimundur og Róbert Stefán eru búnir að taka niður mestallt limgerðið og er talsverður sjónarsviptir að því en það var orðið þónokkurra mannhæða hátt.
Í haust hefur snjóað mun meira en mér finnst hentugt og núna um miðjan desember er enn allt hvítt og harðfrosið.

Í nóvember tókst mér
þó að skjótast á milli élja til Egilsstaða til að vera í tveggja ára afmæli.
Alveg nauðsynlegt að hitta af og til unga fólkið og leyfa því ekki að gleyma
ömmu og afa. Afi komst að vísu ekki með í þetta sinn en ég dvaldi þarna í góðu
yfirlæti nokkra daga.
Í sveitinni eru mörg handtökin sem vinna þarf og vel þegið að fá vinnumenn stundum um helgar, ekki síst þegar bóndinn er farinn að eldast. Mikið hefur munað um Ingimund á árinu og ekki er verra þegar Jakob og Ívan koma með honum.
Þetta er meðal þess helsta sem gerðist á árinu og vonandi verða bara engin stórtíðindi nú í desember. Við sendum héðan hlýjar óskir um gleðileg jól og notalega framtíð.
Svo mörg voru þau orð, þetta er semsagt það sem stóð í jólabréfinu. Það heyrir til algerra undantekninga að ég setji svona margar myndir í eina færslu en mér fannst ómögulegt að vera að slíta í sundur jólabréfið/annálinn.
Því má svo bæta við að í árslok gengu loks í gegn kaup okkar á jörðinni af ríkissjóði og er það góð tilfinning.
Að lokum bestu þakkir fyrir samskiptin á nýliðnu ári og óskir um gott líf á nýbyrjuðu.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)